Icelandic Bible


Jobsbók 9



1 Þá svaraði Job og sagði:
2 Vissulega, ég veit að það er svo, og hvernig ætti maðurinn að hafa rétt fyrir sér gagnvart Guði?
3 Þóknist honum að deila við hann, getur hann ekki svarað einni spurningu af þúsund.
4 Hann er vitur í hjarta og máttkur að afli _ hver þrjóskaðist gegn honum og sakaði eigi? _
5 Hann sem flytur fjöll, svo að þau vita ekki af, hann sem kollvarpar þeim í reiði sinni,
6 hann sem hrærir jörðina úr stað, svo að stoðir hennar leika á reiðiskjálfi,
7 hann sem býður sólinni, og hún rennur ekki upp, og setur innsigli fyrir stjörnurnar,
8 hann sem þenur út himininn aleinn, og gengur á háöldum sjávarins,
9 hann sem skóp Vagnstirnið og Óríon, Sjöstjörnuna og forðabúr sunnanvindsins,
10 hann sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega og dásemdarverk, er eigi verða talin,
11 sjá, hann gengur fram hjá mér, en ég sé hann ekki, hann strýkst fram hjá, en ég verð hans ekki var.
12 Þegar hann þrífur til, hver vill þá aftra honum, hver vill segja við hann: "Hvað gjörir þú?"
13 Guð heldur ekki aftur reiði sinni, bandamenn hafdrekans beygðu sig undir hann.
14 Hversu miklu síður mundi ég þá geta svarað honum, geta valið orð mín gagnvart honum,
15 ég sem ekki mætti svara, þótt ég hefði rétt fyrir mér, heldur verð að beiðast miskunnar af dómara mínum.
16 Þótt ég kallaði og hann svaraði mér, þá mundi ég ekki trúa, að hann hlustaði á mig.
17 Miklu fremur mundi hann hvæsa á mig í stormviðri og margfalda sár mín án saka,
18 aldrei leyfa mér að draga andann, heldur metta mig beiskri kvöl.
19 Sé um kraft að ræða, er mátturinn hans, sé um rétt að ræða, hver vill þá stefna honum?
20 Þótt ég hefði rétt fyrir mér, þá mundi munnur minn sakfella mig, þótt ég væri saklaus, mundi hann koma á mig sektinni.
21 Saklaus er ég, ég hirði ekkert um líf mitt, ég virði að vettugi tilveru mína!
22 Mér stendur á sama um það. Fyrir því segi ég: hann tortímir jafnt saklausum sem óguðlegum.
23 Þegar svipan deyðir snögglega, þá gjörir hann gys að örvænting hinna saklausu.
24 Jörðin er gefin í vald hinna óguðlegu, hann byrgir fyrir andlitið á dómendum hennar. Sé það ekki hann _ hver þá?
25 Dagar mínir voru skjótari en hraðboði, liðu svo hjá, að þeir litu enga hamingju.
26 Þeir brunuðu áfram eins og reyrbátar, eins og örn, sem steypir sér niður á æti.
27 Ef ég segi: Ég ætla að gleyma volæði mínu, ég ætla að breyta andlitssvip mínum og vera kátur, _
28 þá hryllir mig við öllum þjáningum mínum, því ég veit þú sýknar mig ekki.
29 Ég á nú að vera sekur, hví skyldi ég þá vera að mæðast til ónýtis?
30 Þótt ég þvægi mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar í lút,
31 þá mundir þú dýfa mér ofan í forarvilpu, svo að klæðum mínum byði við mér.
32 Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum, að við getum gengið saman fyrir réttinn.
33 Enginn er sá, er úr skeri okkar í milli, er lagt geti hönd sína á okkur báða.
34 Hann taki vönd sinn frá mér og láti ekki skelfing sína hræða mig,
35 þá vil ég tala og eigi óttast hann, því að svo er mér eigi farið hið innra.