Icelandic Bible


Jeremía 45



1 Orðið sem Jeremía spámaður talaði til Barúks Neríasonar, þá er hann skrifaði þessi orð í bókina eftir forsögn Jeremía á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, konungs í Júda:
2 Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, um þig, Barúk:
3 Þú sagðir: "Vei mér, því að Drottinn bætir harmi við kvöl mína. Ég er þreyttur orðinn af andvörpum mínum, og hvíld finn ég enga!"
4 Svo skalt þú til hans mæla: Svo segir Drottinn: Sjá, það sem ég hefi byggt, ríf ég niður, og það sem ég hefi gróðursett, uppræti ég.
5 En þú ætlar þér mikinn hlut! Girnst það eigi! Því að sjá, ég leiði ógæfu yfir allt hold _ segir Drottinn. En þér gef ég líf þitt að herfangi, hvert sem þú fer.